Rafvélatækni ehf. er löggiltur rafverktaki sem sérhæfir sig í véla- og iðnaðarrafmagni — en tekur einnig að sér öll almenn raflagnaverk.
Rafvélatækni ehf. var stofnað í janúar 2026 af Leó Snæ Róbertssyni, rafiðnfræðing, meistara í rafvirkjun og rafvélavirkjun.
Rafvélatækni er löggiltur rafverktaki sem sérhæfir sig í véla- og iðnaðarrafmagni. Þó sérhæfing okkar liggur á því sviði, skorumst við ekkert undan öðrum almennum raflagnaverkum og erum við fullfærir til að takast á við öll almenn raflagnaverkefni.
Rafvélatækni leggur áherslu á fagleg vinnubrögð, framúrskarandi og persónulega þjónustu.
Allt frá almennum raflögnum til sérhæfðra iðnaðarlausna og öryggisbúnaðar.
Við bjóðum upp á alla almenna raflagnavinnu fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki — lýsing, hleðslustöðvar, tenglar, töfluskipti, netlagnir og fleira.
Við bilanagreinum og gerum við fyrir þig — bilanir á heimilum eða í verksmiðjum, skiptir engu máli.
Við bjóðum upp á neyðarþjónustu utan hefðbundins vinnutíma. Ekki föst bakvakt, en alltaf má reyna að hringja og athuga hvort við komumst.
Við setjum upp vönduð myndavélakerfi fyrir fyrirtæki, húsfélög og heimili. Kerfin veita aukið öryggi og yfirsýn, örugga upptöku og einfalt fjaraðgengi í síma eða tölvu.
Við setjum upp aðgangsstýrikerfi fyrir fyrirtæki, húsfélög og aðrar fasteignir. Kerfin veita örugga og þægilega aðgangsstýringu með aðgangskortum, lyklakubbum eða snjallsíma.
Við setjum upp áreiðanleg öryggiskerfi fyrir fyrirtæki, húsfélög og heimili. Kerfin geta vaktað innbrot, eld og vatnsleka ásamt því að senda tilkynningar þegar frávik greinast.
Vandaðar teikningar fyrir stjórnkerfi rafbúnaðar ásamt forritun iðntölva (PLC).
Rafvélatækni smíðar stjórnskápa og töflur eftir þínum þörfum og hönnun.
Hafðu samband og við ræðum næstu skref. Reynt er að svara eins fljótt og hægt er. Ef erindið er brýnt þá má hringja í 419-8700.